Galway, flugmál og verkefnavinna, myndir

Jæja um helgina fór ég í ferðalag. Að þessu sinni ákvað ég að skella mér til Galway sem er akkurat hinum megin á Írlandi, þ.e. ég er alveg í austri og Galway er alveg í vestri. Tók rúmlega 3 tíma með rútu svo ég lagði eldsnemma af stað, tók held ég rútuna kl 6 eða 7, man það ekki alveg. Ég steig út úr rútunni og fann bara hvernig allt stress og annað bara lak burtu. Þetta var eitthvað svo rólegur bær að maður fann bara kyrrðina líða yfir mann. Fékk sömu tilfinningu þegar ég fór til Cambridge á Englandi á sínum tíma. Ekkert of stór, búa held ég 72þúsund manns þarna, og reyndar fannst mér hún ekki neitt mikið stærri en Akureyri en hún er samt nokkrum sinnum stærri.Gekk um bæinn, skoðaði t.d. dómkirkjuna sem var rosaleg og hér fyrir neðan er mynd af mér í henni (b.t.w. það voru allir að taka myndir svo ég var ekkert með neitt samviskubit yfir því enda var ég sá eini sem notaði ekki flass).Kom svo aftur til Dublin kl 22:00 og skellti mér í bíó áður en ég fór í háttinn.

Hvað er annað að frétta... jú í gærkvöldi kannaði ég verðin aftur á fluginu mínu því ég hef eiginlega ekki haft efni á því að kaupa mér flug, svo blankur er maður nema hvað að flugið mitt hafði hækkað úr tuttugu og eitthvað þúsund upp í 32þúsund fyrir ekki svo löngu og var svo allt í einu komið upp í 74þúsund daginn sem ég ætlaði heim! Nú voru góð ráð dýr því ég átti 23.315 kr á reikningnum mínum :S

Ég lét ekki segja mér neitt svona rugl og fann mér flug á vegum Iceland Express sem kostaði 24.115, fékk pabba til að lána mér 800 krónurnar sem upp á vantaði og pantaði mér flugið. Reyndar verður þetta svona frekar tæpt allt saman daginn sem ég fer heim því ég lýk prófinu mínu á hádegi, á þá eftir að gera mig alveg klárann til að fara, fara upp á flugvöll, tékka mig inn, bíða eftir flugvélinni, fljúga til London, tékka mig inn þar, bíða eftir fluginu og vera kominn upp í vélina ekki seinna en 19:30 því þá fer flugið til Íslands eeen það reddast. Fann flug hjá Ryanair sem kostar bara eitthvað klink, fer kl 16:50 frá Dublin og lendir 18:05 sem gefur mér tæplega einn og hálfan tíma til að hlaupa í næstu vél og miðað við hvað ég hef ferðast mikið í ár þá ætti það ekki að taka langan tíma enda er ég einstaklega laginn við t.d. kiosk vélarnar og vopnaeftirlitið og allt það.

Mamma og pabbi koma á Fimmtudaginn og verða fram á sunnudagseftirmiðdag sem verður gaman en það þýðir líka að ég verð að vera sick duglegur þangað til að þau koma því að eftir að þau fara þarf ég að skila einu einstaklingsverkefni á miðvikudeginum og kynna svo og skila inn hópaverkefni á fimmtudeginum. Ráðgeri að klára einstaklingsverkefnið í dag og á morgun og gera líka dáldið í hópaverkefninu, nota svo sunnudagskvöldið í hópaverkefnið og alla daga fram að kynningu.

Talandi um verkefnavinnu þá skilaði ég inn verkefni í gær sem flestir höfðu svona 3 blaðsíður en ég ákvað að hafa mitt 15 blaðsíður, eyddi t.d. 10 mínútum að ákveða hversu þykk lína á forsíðunni ætti að vera og hafði bara allan pakkann. Held að ég hafi aldrei lagt jafn mikið í eitt verkefni en reyndar er ég með eitt tilbúið verkefni í tölvunni sem ég get ekki skilað strax sem verður ennþá betra

Jæja svo ég haldi áfram með 24 niðurtalninguna mína þá eru 22 dagar 22klst 21mín þangað til að ég held heimleiðis og ég er búinn að vera í burtu frá Íslandi í tæplega 75 daga:)

 

 

IMG_0151

Hér er mynd af mér við skólann minn, haldandi á mínum daglega skammti af pepsi og í nýju Griffith College peysunni minni:

 

 

IMG_0153

 Hér er búðin sem er hjá heimilinu mínu sem ég verlsa í sem er rekin af kínverjum eða japönum sem minna mig þvílíkt á kínverjana sem eiga verslunina í Don't be A Menace, skemmtilegt það. 

 

 

IMG_0154

Hér er skólinn minn séður frá götunni 

 

IMG_0162

 

 

 

Hér er Connor meðleigjandi minn og tónlistarlegur elskuhugi minn, þ.e. við eigum í tónlistarlegu sambandi sem gengur út á að hann er sífellt að gefa mér tónlist sem er oftast frekar léleg en eitt og eitt gott lag kemur inn hér og þar og svo er hann líka byrjaður að búa til remix handa mér úr ýmsum lögum. Þegar ég hugsa út í það þá er hann líka alltaf að búa til mat handa mér sem er alltaf klikkað góður. Tónlist og matur, hvað getur maður beðið um meira...

 
IMG_0169
Hér er svo hinnfrægi Trinity College sem er niðri í bæ en ég er ekki í, það er svona stigsmunur á skólunum tveimur í útliti og gæti verið líka varðandi gæði, veit það samt ekki...
 
 
 
 
IMG_0175
 Hér er ég í einni af kennslustofunum mínum sem ég nota bæði þegar ég er í tímum auðvitað og svo stundum þegar bókasafnið er lokað eða að mér hefur verið hent út á kvöldin vegna lokunnar en ég reyni alltaf að vera aldrei styttra en til 22:30 að læra á kvöldin. Djösins pósa er þetta hjá manni mar og klikkaða body sko, svo er kallinn bara í því besta, Diesel, Converse, Cintamani og Ralph Loren jÁJÁ það er enginn kreppulykt af kvekindinu í Dublin sko neneneee!
 
IMG_0180
Þessi mynd sýnir alveg hvernig stemmingin var í Galway, fór nefnilega á svona ekta markað sem var með all til sölu og þar á meðal nýuppteknar gulrætur, osta, brauð, skartgripi, föt og ég veit ekki hvað og hvað.
 
 
IMG_0183
Hér er ég í Galway, er í garðinum sem er svona í miðri Galway þar sem allir hittast á og slaka á, lesa góða bók eða bara ganga um, sést reyndar ekki á þessari mynd hvað Galway er frábær en þið verðið bara að trúa mér, kellinn veit hvað hann er að tala um enda veraldarvanur skvoh!
IMG_0204
 
 
Jæja þá er kallinn bara mættur í dómkirkjuna sem lítur alveg ágætlega út á þessari mynd en hún nær ekki að sýna hvað það er svakalega hátt upp í loft beint fyrir ofan altarið sem er þarna fyrir aftan mig en allavegan gott stöff gott stöff.
 
IMG_0186
  
Hér er svo ein pósa fyrir gellurnar. Takið eftir því kallinn gerir sig sexy með því að hafa höndina hálfa upp úr vasanum, góður snúningur á líkamanum og almennt góð líkamsbeiting. Takið líka eftir látlausri klippingu sem dregur út fallega andlitauppbygginguna og takið þá sérstaklega eftir kynnbeininu sem öskrar kynþokki. Staðsetningin er líka epísk, hann stendur hjá björgunarhring, er hann hluti af Baywatch teyminu, er hann frægur eða er hann módel?...
 
 
 
 
 
 
 
....
 
 
 
 
....
 
 
  

.... 
 
 
 
... 
 
 
...
 
Auðvitað er hann módel
Photo 240 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já núna færðu ekki vinnu sem viðskiptafræðingur svo það er fínt að hafa eitthvað í bakhöndinni til að geta gripið til. Módel fá nú þokkaleg laun held ég.

Kveðja,

Sigrún Lína (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 19:27

2 identicon

Kolbeinn, þú ert snillingur! Gangi þér vel með verkefnin.

Grétar (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 22:34

3 Smámynd: Bjarki Þór Guðmundsson

Þetta eru alveg svakalegar pósu hjá þér, er ekki bara málið að fara að auglýsa fyrir DRESSMAN. Annars er gaman að heyra hvað gengur vel hjá þér, verður gaman að hitta þig um jólin og skiptast á ferðasögum.

Ciao

Bjarki Þór Guðmundsson, 22.11.2008 kl. 11:12

4 identicon

ólífur?

http://www.youtube.com/watch?v=9cWmpW87fWw&NR=1

Mási mási más (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband